Miralem Pjanic, miðjumaður Juventus á Ítalíu, gæti verið frá í nokkrar vikur eftir hann meiddist í leik með Bosníu.
Pjanic var í liði Bosníu sem gerði markalaust jafntefli við Austurríki en hann meiddist undir lok leiks og haltraði af velli.
Hann var sendur beint til Ítalíu þar sem hann verður skoðaður en talið er að hann hafi tognað í fætinum.
Talið er líklegt að hann verði frá í nokkrar vikur sem er þungt högg fyrir Juventus.
Pjanic er lykilmaður í liðinu og hefur unnið deildina tvisvar auk þess sem hann hefur tvisvar verið í liði ársins á Ítalíu.
Athugasemdir