Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 17. nóvember 2018 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Van Dijk fýlar ekki Ramos - Varane í uppáhaldi
Mynd: Getty Images
Dejan Lovren, varnarmanni Liverpool, finnst fátt skemmtilegra en að skjóta á Sergio Ramos.

Ramos er ekki vinsæll hjá Liverpool-mönnum eftir að Mohamed Salah fór meiddur af velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir viðskipti við hann.

Lovren lét Ramos heyra það í vikunni og nú hefur Virgil van Dijk, annar varnarmaður Liverpool, sagt sína skoðun á spænska varnarmanninum.

Van Dijk er enginn rosalegur aðdáandi, hann er meiri aðdáandi Raphael Varane, félaga Ramos í vörninni hjá Real Madrid.

„Hann er góður leikmaður og ég virði það sem hann hefur afrekað en hann er ekki sá besti, hann er ekki mín týpa af varnarmanni," sagði Van Dijk við De Telegraaf.

„Raphael Varane er í uppáhaldi hjá mér."
Athugasemdir
banner
banner