Jong AZ 1 - 1 Jong Ajax
0-1 C. Rasmussen ('41)
1-1 D. Reverson ('82, víti)
Kristian Nökkvi Hlynsson spilaði fyrstu 80 mínúturnar er varalið Ajax gerði jafntefli við varalið AZ Alkmaar í hollensku B-deildinni.
Jong Ajax tók forystuna undir lok fyrri hálfleiks og gerðu heimamenn í AZ jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu skömmu eftir að Kristiani Nökkva var skipt útaf.
Ajax er í tíunda sæti deildarinnar með 21 stig eftir 16 umferðir á meðan AZ er með 24 stig.
Varaliðin geta ekki komist upp um deild eða tekið þátt í umspili um sæti í efstu deild.
Athugasemdir