Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 17. nóvember 2022 10:05
Elvar Geir Magnússon
Spánverjar fá ekki uppáhalds matinn sinn
Luis Enrique, þjálfari Spánverja.
Luis Enrique, þjálfari Spánverja.
Mynd: EPA
El Pais segir að spænska landsliðið þurfi að sætta sig við að vera án síns uppáhalds matar á HM í Katar.

Kokkar liðsins séu vanir því að taka með sér Iberico skinku í landsliðsverkefni og velja hráefnið mjög vandlega. Skinkan ku vera í miklu uppáhaldi hjá leikmönnum.

En innflutningur á svínakjöti er bannaður í Katar og því varð að skilja skinkuna eftir heima á Spáni.

Spánn hefur leik á HM á miðvikudag gegn Kosta Ríka en á eftir fylgja síðan leikir gegn Þýskalandi og Japan.


Athugasemdir
banner
banner