Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 17. desember 2018 09:30
Magnús Már Einarsson
Dregið í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni í dag
Liverpool og Manchester City eru í pottinum.
Liverpool og Manchester City eru í pottinum.
Mynd: Getty Images
Dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar klukkan 11.00 í dag.

Í 16-liða úrslitum mæta sigurvegararnir úr riðlunum liðum sem lentu í 2. sæti.

Lið frá sama landi geta ekki mæst fyrr en í 8-liða úrslitum.

Hér að neðan má sjá liðin í pottinum í dag.

Sigurvegarar riðlanna
Barcelona
Bayern Munchen
Dortmund
Juventus
Manchester City
Porto
PSG
Real Madrid

Liðin í 2. sæti
Atletico Madrid
Ajax
Manchester United
Liverpool
Lyon
Roma
Schalke
Tottenham

Fyrri leikirnir fara fram 12/13. febrúar og þeir síðari 19/20. febrúar. Síðari leikirnir verða 5/6. mars og 12/13. mars.
Athugasemdir
banner
banner