Guðlaugur Victor til Napoli og Jón Guðni mætir Leverkusen
Nú rétt í þessu var dregið í 32-liða úrslit í Evrópudeildinni. Arnór Ingvi Traustason og félagar í sænska liðinu Malmö mæta þar stórliði Chelsea frá Englandi.
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í FC Zurich mæta stórliði Napoli frá Ítalíu og Jón Guðni Fjóluson og félagar í Krasnodar mæta Bayer Leverkusen frá Þýskalandi.
Arsenal mætir BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi, Lazio mætir Sevilla í stórleik og Celtic leikur við Valencia.

16-liða úrslit
Malmö - Chelsea
Rapid Vín - Inter
Slavia Prag - Genk
FC Zurich - Napoli
Viktoria Plzen - Dinamo Zagreb
Club Brugge - Red Bull Salzburg
Celtic - Valencia
Krasnodar - Bayer Leverkusen
Olympiakos - Dynamo Kiev
Rennes - Real Betis
Shakhtar Donetsk - Frankfurt
Lazio - Sevilla
Fenerbahce - Zenit St Pétursborg
BATE Borisov - Arsenal
Sporting Lisabon - Villarreal
Galatasaray - Benfica
Fyrri leikirnir fara fram 12 og 14. febrúar en þeir síðari fara fram 20 og 21. febrúar.
Athugasemdir