Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 17. desember 2018 12:59
Magnús Már Einarsson
Klopp spenntur fyrir Bayern
Mynd: Getty Images
„Þetta er erfiður en góður dráttur," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool eftir að ljóst varð að liðið mætir Bayern Munchen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Auk Bayern gat Liverpool mætt Real Madrid, Barcelona, Juventus, Dortmund eða Porto.

„Það var ljóst að þetta yrði erfitt og þeir eru auðvitað topplið. Fyrir mig verður gott að fara aftur til Þýskalands."

„Þetta er hins vegar bara dráttur. Núna höfum við tíma til að undirbúa leikinn, mikinn tíma, og vonandi verða allir leikmenn okkar klárir þá. Þetta verður erfitt og áhugavert. Ég hlakka til."


Fyrri leikur Liverpool og Bayern verður á Anfield þriðjudaginn 19. febrúar en sá síðari fer fram á Allianz Arena í Munchen miðvikudaginn 13. mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner