mán 17. desember 2018 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rándýrt að reka Mourinho
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar hafa verið að reikna út hversu mikinn pening Jose Mourinho getur fengið frá Manchester United skyldi félagið reka hann á tímabilinu.

Gengi Man Utd hefur verið afar slæmt það sem af er tímabils og telja veðbankar Mourinho vera líklegastan til að fjúka.

Þær líkur gætu þó breyst því ýmsir sparkspekingar telja ólíklegt að Rauðu djöflarnir tími að reka Mourinho því það sé svo gríðarlega dýrt.

Margar tölur hafa verið nefndar en flestir eru sammála um að Man Utd þyrfti að greiða í kringum 24 milljónir punda til að losa sig við Portúgalann núna.

Ákveði félagið að bíða þar til eftir að tímabilinu lýkur mun kostnaðurinn lækka um 6 milljónir, nema Mourinho takist að stýra sínum mönnum í Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner