Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 17. desember 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Selfoss Íslandsmeistari í Futsal kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Kvennalið Selfyssinga varð Íslandsmeistari í Futsal eftir öruggan 5-1 sigur gegn Álftanesi í íþróttahúsi Vallaskóla í gær.

Selfoss endaði í öðru sæti Íslandsmótsins í Futsal í fyrra eftir tap gegn Álftanesi í úrslitaleiknum og því var kjörið tækifæri til að ná fram hefndum.

Þetta er í annað sinn sem Selfoss verður Íslandsmeistari kvenna í Futsal eftir að liðið vann mótið einnig fyrir tveimur árum.

Utandyra leikur kvennalið Selfoss í Pepsi-deildinni en Álftanes endaði í 3. sæti í 2. deild í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner