Alaves 0 - 0 Athletic Bilbao
Alaves tók á móti Athletic Bilbao í síðasta leik sextándu umferðar í spænska boltanum.
Lítið var um færi í bragðdaufum leik þar sem bæði lið virtust vera sátt við eitt stig.
Hvorugu liði tókst að skora þó heimamenn hafi verið betri eftir leikhlé, en aðeins tvö skot þeirra rötuðu á rammann gegn þremur frá gestunum.
Alaves er í sjötta sæti eftir jafnteflið, fjórum stigum frá Real Madrid í Meistaradeildarsæti. Bilbao er í fallsæti, jafnt Villarreal á stigum. Tíu stig og tólf sæti skilja liðin að í deildinni.
Athugasemdir