Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 18. janúar 2019 20:15
Brynjar Ingi Erluson
Eiginkona Icardi: Hann mun framlengja við Inter
Mauro Icardi og Wanda
Mauro Icardi og Wanda
Mynd: Getty Images
Mauro Icardi, fyrirliði Inter á Ítalíu, mun framlengja samning sinn við félagið en Wanda, eiginkona og umboðsmaður hans, staðfesti þessar fregnir í dag.

Icardi er 25 ára gamall og hefur spilað með Inter frá 2013 en hann kom þá frá Sampdoria. Hann hafði þar áður spilað með unglingaliði Barcelona en fann sig ekki þar.

Hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Inter og er nú þegar fyrirliði liðsins auk þess hefur hann skorað 121 mark í 205 leikjum fyrir félagið.

Viðræður Icardi við Inter hafa gengið illa síðustu vikur en nú virðist hann þó færast nær því að framlengja. Hann er með klásúlu í samning sínum sem leyfir honum að fara fyrir 110 milljónir evra milli 1. og 15. júní í sumar en sú klásúla verður fjarlægð í nýja samningnum.

„Við munum framlengja við Inter. Hann fær nýjan samning, ekki hafa áhyggjur af því," sagði Wanda.
Athugasemdir
banner
banner
banner