Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 18. janúar 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Erfitt að halda í við Juventus
Mynd: Getty Images
Það er skemmtileg helgi framundan í ítalska boltanum sem hefst á spennandi viðureign Roma og Torino á laugardaginn.

Liðin mætast í Evrópubaráttunni og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Udinese tekur svo á móti Parma áður en Inter og Sassuolo eigast við í síðasta leik dagsins, sem verður einnig sýndur beint.

Emil Hallfreðsson er enn frá vegna hnémeiðsla og verður ekki með er fallbaráttulið Frosinone, sem er með 10 stig eftir 19 umferðir, tekur á móti Atalanta.

Fiorentina mætir Sampdoria í Evrópubaráttunni og eigast Cagliari og Empoli við í fallbaráttunni áður en Napoli mætir Lazio í stórleik dagsins.

Genoa tekur svo á móti Milan á mánudaginn og eiga Ítalíumeistarar Juventus síðasta leik 20. umferðar, á heimavelli gegn botnliði Chievo.

Laugardagur:
14:00 Roma - Torino (Stöð 2 Sport 2)
17:00 Udinese - Parma
19:30 Inter - Sassuolo (Stöð 2 Sport 2)

Sunnudagur:
11:30 Frosinone - Atalanta (Stöð 2 Sport 2)
14:00 Fiorentina - Sampdoria
14:00 Spal - Bologna
17:00 Cagliari - Empoli
19:30 Napoli - Lazio (Stöð 2 Sport 5)

Mánudagur:
14:00 Genoa - Milan (Stöð 2 Sport 2)
19:30 Juventus - Chievo (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 32 26 5 1 77 17 +60 83
2 Milan 32 21 6 5 63 37 +26 69
3 Juventus 32 18 9 5 45 24 +21 63
4 Bologna 32 16 11 5 45 25 +20 59
5 Roma 31 16 7 8 56 35 +21 55
6 Atalanta 31 15 6 10 57 36 +21 51
7 Napoli 32 13 10 9 50 40 +10 49
8 Lazio 32 15 4 13 41 35 +6 49
9 Torino 32 11 12 9 31 29 +2 45
10 Fiorentina 31 12 8 11 43 36 +7 44
11 Monza 32 11 10 11 34 41 -7 43
12 Genoa 32 9 12 11 35 39 -4 39
13 Lecce 32 7 11 14 27 48 -21 32
14 Cagliari 32 7 10 15 34 54 -20 31
15 Verona 32 6 10 16 30 44 -14 28
16 Udinese 31 4 16 11 30 47 -17 28
17 Empoli 32 7 7 18 25 48 -23 28
18 Frosinone 32 6 9 17 40 63 -23 27
19 Sassuolo 32 6 8 18 39 62 -23 26
20 Salernitana 32 2 9 21 26 68 -42 15
Athugasemdir
banner
banner
banner