Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 18. janúar 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Klopp ætlar með Liverpool í sólina
Til í sólina.
Til í sólina.
Mynd: Getty Images
ESPN segir að Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hafi ákveðið að fara með liðið í æfingaferð til Dubai í næstu viku.

Eftir leikinn gegn Crystal Palace á morgun eru ellefu dagar í næsta leik Liverpool þar sem liðið datt út úr enska bikarnum gegn Wolves í síðustu viku.

Klopp ætlar að nýta hléið til að fara til Dubai og æfa í heitara loftslagi.

Liverpool hefur undanfarin tímabil notað leikjapásur til að fara í æfingaferðir á heitari staði.

Samkvæmt frétt ESPN er Klopp að íhuga að fara jafnvel í aðra ferð í febrúar þegar önnur pása kemur hjá liðinu á meðan spilað er í bikarkeppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner