Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. janúar 2019 08:09
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Enskar fótboltastjörnur fjölmenntu á NBA leik
Bellerín og Aubameyang fylgjast spenntir með.
Bellerín og Aubameyang fylgjast spenntir með.
Mynd: Getty Images
Washington Wizards vann nauman 101-100 sigur gegn New York Knicks í NBA-körfuboltaleik sem fram fór í London í gærkvöldi.

Stjörnur úr ensku úrvalsdeildinni fjölmenntu á leikinn, sem fram fór í O2 höllinni.

Sérstaklega var góð mæting úr herbúðum Arsenal. Hector Bellerín, Alexandre Lacazette og Pierre-Emerick Aubameyang voru í dýrustu sætunum.

Rob Holding, Lucas Torreira, Shkodran Mustafi, Calum Chambers, Alex Iwobi, Emile Smith Rowe og Matteo Guendouzi voru einnig mættir.

Ruben Loftus-Cheek, Ethan Ampadu og Andreas Christensen úr Chelsea gáfu aðdáendum bolamyndir og Olivier Giroud var einnig á leiknum.

Auk þeirra mátti sjá Joe Gomez úr Liverpool með kærustu sinni, Lukasz Fabianski, Victor Lindelöf, Troy Deeney, Christian Benteke, Wilf Zaha og fleiri.

Embed from Getty ImagesEmbed from Getty ImagesEmbed from Getty ImagesEmbed from Getty Images
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner