Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 18. janúar 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Stórleikur á Santiago Bernabeu
Mynd: Getty Images
Spænski boltinn rúllar af stað í kvöld þegar Getafe og Alaves, tvö spútnik lið tímabilsins á Spáni, mætast í mikilvægum Evrópubaráttuleik.

Fjögur stig skilja liðin að í fimmta og sjötta sæti og er Alaves aðeins einu stigi á eftir Real Madrid í Meistaradeildarsæti.

Real Madrid mætir til leiks á laugardaginn þegar Sevilla kemur í heimsókn í stórleik sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3. Liðin eru jöfn á stigum í þriðja og fjórða sæti deildarinnar.

Botnlið Huesca tekur svo á móti Atletico Madrid sem er í öðru sæti, fimm stigum eftir Barcelona. Celta Vigo og Valencia mætast svo í síðasta leik laugardagsins, en tvö stig skilja liðin að í ótrúlega þéttum neðri hluta deildarinnar.

Á sunnudaginn er einnig þétt dagskrá þar sem Real Betis mætir Girona fyrir hádegi og Villarreal tekur svo á móti Athletic Bilbao.

Topplið Barcelona fær Leganes í heimsókn í síðasta leik sunnudagsins og er búist við sigri Börsunga á Nývangi eftir góða frammistöðu gegn Levante í bikarnum.

Síðasti leikur helgarinnar fer fram mánudagskvöldið, þegar Eibar tekur á móti Espanyol.

Föstudagur:
20:00 Getafe - Alaves

Laugardagur:
15:15 Real Madrid - Sevilla (Stöð 2 Sport 3)
17:30 Huesca - Atletico Madrid (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Celta Vigo - Valencia (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
11:00 Real Betis - Girona
15:15 Villarrreal - Athletic Bilbao
17:30 Levante - Valladolid
17:30 Vallecano - Real Sociedad
19:45 Barcelona - Leganes (Stöð 2 Sport 3)

Mánudagur:
20:00 Eibar - Espanyol
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Osasuna 32 12 6 14 37 44 -7 42
10 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
11 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
12 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 32 6 13 13 25 39 -14 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner