Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 18. janúar 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Bayern í beinni útsendingu í kvöld
Mynd: Getty Images
Þýski boltinn fer af stað í kvöld eftir vetrarfrí. Íslenskir aðdáendur Búndeslígunnar eru eflaust hoppandi kátir með það enda er þýska deildin komin aftur í sjónvörp landsmanna eftir alltof langa fjarveru.

SportTV er búið að fjárfesta í þýska boltanum og verður með beinar útsendingar af leikjum næstu árin, eða til sumarsins 2021 hið minnsta.

Stórstjörnurnar í FC Bayern verða í beinni útsendingu í kvöld. Bayern á gífurlega erfiðan útileik við Hoffenheim og þarf sigur í toppbaráttunni, en liðið er óvænt sex stigum eftir toppliði Borussia Dortmund eftir fyrri hluta tímabilsins.

Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg mæta til leiks á laugardaginn er þeir taka á móti Fortuna Düsseldorf í beinni. Aron Jóhannsson verður ekki með Werder Bremen gegn Hannover vegna ökklameiðsla.

Bayer Leverkusen á þá leik við Borussia Mönchengladbach og Eintracht Frankfurt tekur á móti Freiburg áður en stórleikur dagsins hefst.

RB Leipzig tekur þar á móti toppliði Dortmund í afar spennandi leik. Leipzig er í fjórða sæti, ellefu stigum frá Dortmund.

Báðum sunnudagsleikjunum verður þá sjónvarpað. Nürnberg tekur fyrst á móti Hertha Berlin og lýkur helginni á viðureign Schalke og Wolfsburg.

Föstudagur:
19:30 Hoffenheim - FC Bayern (SportTV)

Laugardagur:
14:30 Augsburg - Dusseldorf (SportTV)
14:30 Leverkusen - M'Gladbach
14:30 Frankfurt - Freiburg
14:30 Hannover - Werder Bremen
14:30 Stuttgart - Mainz
17:30 RB Leipzig - Dortmund (SportTV)

Sunnudagur:
14:30 Nurnberg - Hertha Berlin (SportTV)
17:00 Schalke - Wolfsburg (SportTV)
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner