Fotbolti.net
18.01.25 - 17:32
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Sheffield United á toppinn - Matt Ritchie sá um endurkomu Portsmouth

Harrison Burrows fagnar seinna marki sínu

Harrison Burrows fagnar seinna marki sínu

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United er komið á toppinn í ensku B-deildinni eftir 2-0 sigur liðsins á Norwich City í dag.
Merkilega við þennan ágæta sigur Sheffield Uniteder að varnarmaðurinn Harrison Burrows skoraði bæði mörk liðsins.

Burrows er vinstri bakvörður sem getur einnig spilað á miðju og kantinum en í dag var hann í bakverðinum. Fyrra markið gerði hann eftir að United vann boltann við vítateig Norwich og var það Burrows sem tók á móti skoppandi bolta og hamraði honum fyrir utan teig og í hægra hornið.

Seinna markið gerði hann úr vítaspyrnu á 59. mínútu og kom United á toppinn. Liðið er með 55 stig, tveimur meira en Leeds og Burnley.

Lærisveinar Frank Lampard í Coventry unnu Bristol City 1-0 og þá tapaði Blackburn Rovers, lið Arnórs Sigurðssonar, fyrir Oxford United, 1-0. Arnór var ekki með vegna meiðsla.

Stefán Teitur Þórðarson sat allan tímann á varamannabekknum er Preston gerði markalaust jafntefli við Luton og þá skoraði Matt Ritchie, fyrrum leikmaður Newcastle, bæði mörk Portsmouth í 2-1 endurkomusigri á Middlesbrough.

Stöðutöflu deildarinnar má sjá neðst í fréttinni.

Úrslit og markaskorarar:

Coventry 1 - 0 Bristol City
1-0 Brandon Thomas-Asante ('62 )

Derby County 0 - 2 Watford
0-1 Imran Louza ('4 )
0-2 Edo Kayembe ('66 )

Luton 0 - 0 Preston NE

Oxford United 1 - 0 Blackburn
1-0 Cameron Brannagan ('67 )

Portsmouth 2 - 1 Middlesbrough
0-1 Emmanuel Latte Lath ('30 )
1-1 Matt Ritchie ('54 )
2-1 Matt Ritchie ('82 )

Sheffield Utd 2 - 0 Norwich
1-0 Harrison Burrows ('22 )
2-0 Harrison Burrows ('59 , víti)

West Brom 1 - 1 Stoke City
0-1 Nathan Lowe ('9 )
1-1 Grady Diangana ('71 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea10+923
2Middlesbrough10+621
3Birmingham10+617
4West Brom10+217
5West Ham9+1116
6Stoke City10+116
7Blackburn10+215
8QPR9+314
9Wolves9+214
10Millwall10014
11Bristol City10-214
12Charlton Athletic10-314
13Southampton9+1013
14Bolton10-313
15Sheffield Utd9+112
16Wrexham10-411
17Lincoln City9-411
18Cardiff City10+110
19Norwich9-29
20Portsmouth8-28
21Burnley10-48
22Watford10-118
23Derby County9-76
24Preston NE10-124
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.