Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 18. febrúar 2019 17:32
Elvar Geir Magnússon
Dokara verður áfram í Ólafsvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emir Dokara, fyrirliði Víkings í Ólafsvík, hefur skrifað undir samning sem gildir út komandi tímabil.

Emir hefur spilað með Víkingi síðan 2011 og er hann reynslumesti maður liðsins.

„Víkingur Ó. lýsir yfir mikilli ánægju með að hafa framlengt við Emir," segir á heimasvæði Ólsara á Facebook.

Dokara er 32 ára og lék 18 leiki í deild og bikar á síðasta tímabili. Víkingur hafnaði í fjórða sæti Inkasso-deildarinnar.

Hann hefur spilað þrjú tímabil með félaginu í Pepsi-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner