Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 18. febrúar 2019 15:46
Magnús Már Einarsson
Firmino veikur - Tæpur fyrir leikinn gegn Bayern
Lovren æfði ekki
Firmino er að glíma við veikindi.
Firmino er að glíma við veikindi.
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino og Dejan Lovren eru ekki mættir á æfingu Liverpool sem er í gangi þessa stundina.

Um er að ræða síðustu æfingu liðsins fyrir leikinn gegn Bayern Munchen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Lovren hefur verið frá keppni síðan 7. janúar og hann hefur verið í kapphlaupi við tímann fyrir leikinn á morgun. Hann virðist ekki ætla að ná að vinna það kapphlaup.

FIrmino er með flensu og óvíst er með þátttöku hans í leiknum annað kvöld.

Xherdan Shaqiri hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli en hann er á æfingunni og er klár í slaginn gegn gömlu félögunum í Bayern Munchen.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner