KR-ingar héldu til Bandaríkjanna í æfingaferð síðastliðinn föstudag en liðið mun æfa þar við góðar aðstæður næstu dagana.
Í gærkvöldi sigraði KR síðan Florida Gulf Coast háskólann 2-1 í æfingaleik. KR stillti upp ungu byrjunarliði í leiknum.
Ástbjörn Þórðarson skoraði bæði mörk KR en Vesturbæingar lentu 1-0 undir í leiknum.
KR-ingar mæta New England Revolution í öðrum æfingaleik á laugardaginn.
New England spilar í MLS-deildinni en þjálfari liðsins er fyrrum markvörðurinn Brad Friedel.
2-1 sigur gegn Florida Gulf Coast University, Byrjunarliðið má sjá á myndinni, Ástbjörn gerði bæði mörkin í seinni hálfleik, meira á https://t.co/Lg5hg9DDwM í fyrramálið pic.twitter.com/Yxa9QFcrHH
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) February 17, 2019
Athugasemdir