Mirror segir ljóst að Dejan Lovren verði ekki með Liverpool gegn Bayern München í Meistaradeildinni á morgun. Króatinn hefur ekki náð að æfa með liðinu en hann fór til Króatíu og vann með styrktarþjálfara til að reyna að verða klár í leikinn.
Mirror segir að hann hafi tapað þeirri baráttu en hann er að glíma við meiðsli aftan í læri.
Skörð eru hoggin í varnarlínu Liverpool. Virgil van Dijk tekur út leikbann og Joe Gomez er enn á meiðslalistanum.

Sagt er að það sé smá möguleiki á að Lovren verði á bekknum á morgun, í ljósi þess að það vantar í vörnina.
Búist er við því að Fabinho spili í miðverði við hlið Joel Matip á morgun.
Athugasemdir