Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 18. febrúar 2019 11:30
Arnar Helgi Magnússon
Mbappe fékk sérstaka viðurkenningu
Mynd: Getty Images
Franska undrabarnið, Kylian Mbappe, fékk á dögunum viðurkenningu frá PSG fyrir að hafa skorað 100 mörk á æfingasvæði liðsins.

Mbappe er einn allra hæfileikaríkasti knattspyrnumaður í heiminum í dag og það virðist fátt koma í veg fyrir það að hann komist á toppinn einn daginn.

Hann fékk sérstakan bol frá félaginu, sönnun þess að hann væri búinn að skora 100 mörk á æfingasvæðinu. Hver hefur verið að telja fylgir sögunni ekki.

Mbappe skoraði gegn Manchester United í síðustu viku í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hér að neðan má sjá tíst sem að Mbappe birti eftir viðurkenninguna og hann virðist hæstánægður.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner