Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 18. febrúar 2019 23:54
Brynjar Ingi Erluson
Sarri: Ég finn fyrir pressunni
Maurizio Sarri
Maurizio Sarri
Mynd: Getty Images
Maurizio Sarri, stjóri Chelsea á Englandi, segist finna fyrir pressunni eftir 2-0 tap gegn Manchester United í enska bikarnum í kvöld.

Það hefur lítið gengið hjá Sarri og félögum síðustu vikur en sæti hans er orðið ansi heitt eftir tapið gegn United á Stamford Bridge í kvöld.

„Við vorum óheppnir í kvöld því við spiluðum vel í fyrri hálfleik og svo undir lok hans var staðan 2-0. Við gáfum þeim nokkur tækifæri en svo spiluðum við furðulegan fótbolta í þeim síðari," sagði Sarri.

„Ég finn fyrir pressunni útaf þessum úrslitum en ekki útaf einhverju öðru. Við verðum að halda áfram að vinna, tala saman og vera ákveðnari í okkar teig og teig andstæðinganna," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner