Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. febrúar 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Shaqiri spenntur fyrir að mæta gömlu félögunum
Spenntur.
Spenntur.
Mynd: Getty Images
Xherdan Shaqiri, leikmaður Liverpool, er mjög spenntur að mæta gömlu félögunum í Bayern Mucnhen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Shaqiri er búinn að vera að glíma við smávægileg meiðsli en ætti að ná leiknum á morgun.

Shaqiri var í tvö og hálft ár hjá Bayern áður en hann fór til Inter árið 2015. Svisslendingurinn er spenntur fyrir að mæta Bayern á Anfield annað kvöld.

„Ég er mjög ánægður því ég vildi spila gegn Bayern Munchen, gegn mínu gömlu liðsfélögum og gamla liði," sagði Shaqiri.

„Þetta var ótrúlegur tími (hjá Bayern). Við unnum marga titla, við unnum Meistaradeildina. Við vorum með besta lið sem Bayern Munchen hefur verið með."

„Þetta var ótrúleg tilfinning að vinna svona marga titla. Ég á margar góðar minningar þar sem ég mun aldrei gleyma. Ég hlakka til að fara þangað og reyna að vinna leikinn í Munchen með liðinu mínu."

Athugasemdir
banner
banner