Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. febrúar 2019 20:16
Brynjar Ingi Erluson
U17 ára landslið kvenna vann Írland
Íslenska U17 ára landsliðið vann Írland í dag
Íslenska U17 ára landsliðið vann Írland í dag
Mynd: KSÍ
Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 17 ára og yngri vann Írland 3-0 í æfingaleik í Fífunni í kvöld.

Liðin eigast við tvisvar á nokkrum dögum en staðan var markalaus í hálfleik í dag.

Í þeim síðari skoraði íslenska liðið þrjú mörk en Andrea Marý Sigurjónsdóttir, Þórhildur Þórhallsdóttir og Ída Marín Hermannsdóttir gerðu mörkin.

Lokatölur því 3-0 en liðin eigast aftur við á miðvikudag en þá fer leikurinn fram í Kórnum.

Byrjunarlið Íslands: Cecilia Rán Rúnarsdóttir (M), Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Kristín Erla Ó. Johnson, Elín Helena Karlsdóttir, Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, Arna Eiríksdóttir (F), Ída Marín Hermannsdóttir, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, Clara SIgurðardóttir, María Catharina Ólafsdóttir Gros, Aníta Ýr Þorvaldsdóttir.
Athugasemdir
banner
banner
banner