Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 18. febrúar 2019 17:30
Elvar Geir Magnússon
Umtiti í hópnum hjá Barcelona
Umtiti hefur varið miklum tíma á meiðslalistanum.
Umtiti hefur varið miklum tíma á meiðslalistanum.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Samuel Umtiti er í hópnum hjá Barcelona sem mætir Lyon í Meistaradeildinni annað kvöld.

Franski landsliðsmaðurinn hefur verið að glíma við hnémeiðsli stærstan hluta tímabilsins og hefur ekki spilað síðan í jafntefli gegn Atletico Madrid þann 24. nóvember.

Umtiti fór að æfa með liðinu á ný í febrúar og nú hefur Ernesto Valverde, þjálfari Börsunga, valið hann í 21 manna hóp sem fór til Frakklands.

Umtiti kom til Barcelona frá Lyon 2016.

Belgíski landsliðsmaðurinn Thomas Vermaelen verður ekki með í leiknum á morgun en hann er meiddur á hné.
Athugasemdir
banner
banner
banner