Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 18. febrúar 2021 23:00
Aksentije Milisic
Arteta: Við stjórnuðum þessum leik
Mynd: Getty Images
„Við stjórnuðum þessum leik í kvöld og sköpuðum okkur nokkur dauðafæri. Við verðum að sýna meira drápseðli. Það var svekkjandi hvernig við fengum markið á okkur," sagði Arteta eftir jafnteflið gegn Benfica í fyrri leik liðanna í Evrópudeildinni í kvöld.

„Við fengum á okkur horn, brugðumst ekki nógu snöggt við hornspyrnunni og svo fáum við á okkur vítið upp úr því. Við svöruðum hins vegar vel fyrir okkur og jöfnum strax með frábæru marki."

„Bæði lið gáfu eftir síðustu tuttugu mínútur leiksins. En þegar öllu er á botninn hvolft þá áttum við að taka meira út úr þessum leik."

Arsenal á erfitt verkefni fyrir höndum um helgina en þá fær liðið Manchester City í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn kemur. City liðið hefur verið óstöðvandi upp á síðkastið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner