Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. febrúar 2021 20:45
Aksentije Milisic
Bruno: Mitt eina markmið er að vinna titla
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, átti mjög góðan leik gegn Real Sociedad í kvöld en United valtaði yfir spænska liðið og vann 4-0.

Bruno gerði tvennu í leiknum og var hann að vonum sáttur í leikslok.

„Þetta eru góð úrslit, við viljum vinna leiki og við gerðum allt vel. Síðari leikurinn á heimavelli verður samt erfiður," sagði Portúgalinn.

„Við vitum að 4-0 eru góð úrslit en við verðum að fara varlega, þetta er lið sem getur refsað. Ég ætla gefa Daniel James stoðsendingu fyrir síðara markið mitt en hann var að reyna að taka á móti boltanum," sagði Bruno léttur.

„Ég vil skora eins mörg mörk og ég get, það er mitt hlutverk. Eina markmiðið er að vinna titla."
Athugasemdir
banner
banner
banner