Grótta tók á móti Grindavík í blankalogni á Vivaldivellinum í gærkvöldi í æfingaleik.
Bæði lið leika í Lengjudeildinni í sumar en Grótta endaði í 6. sæti deildarinnar í fyrra á meðan Grindavík sigraði 2. deild.
Bæði lið leika í Lengjudeildinni í sumar en Grótta endaði í 6. sæti deildarinnar í fyrra á meðan Grindavík sigraði 2. deild.
Skemmst er frá því að segja að Gróttukonur voru sterkari aðilinn allan leikinn og voru 4-0 yfir í hálfleik eftir tvö mörk frá Bjargeyju Ólafsson, Helgu Rakel Fjalarsdóttur og Maríu Lovísu Jónasdóttur. Eydís Lilja Eysteinsdóttir bætti svo fimmta marki Gróttu við í síðari hálfleik og lokatölur 5-0.
Hér að neðan má sjá mörkin í leiknum.
Athugasemdir