Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. febrúar 2021 21:00
Aksentije Milisic
Son: Nýt þess að spila með Bale
Mynd: Getty Images
Son Heung-Min, leikmaður Tottenham, skoraði eitt mark í kvöld í 1-4 sigri Tottenham á Wolfsberger í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Markið hans kom eftir stoðsendingu frá Gareth Bale. Son hrósaði Bale í viðtali eftir leikinn.

„Ég og Bale erum mjög nánir. Ég er mjög ánægður með að hann sé að spila og að hann hafi skorað mark og lagt upp. Ég nýt þess virkilega að spila með honum," sagði Son.

Son vann Puskas verðlaunin fyrir flottasta mark ársins á síðasta ári en leikurinn í kvöld fór einmitt fram á Puskas vellinum í Búdapest.

„Það var mikilll heiður. Að spila á þessum velli er einstakt. Sérstaklega af því ég vann þessi verðlaun í fyrra."

Tottenham fer með þriggja marka forskot í síðari leikinn sem fer fram í London.
Athugasemdir
banner
banner