Luis Suarez meiddist á ökkla er Barcelona lagði Real Betis að velli í gærkvöldi.
Suarez skoraði og lagði upp í 1-4 sigri og hefur katalónska félagið staðfest að hann verður frá í um tvær vikur vegna meiðslanna.
Hann missir því af æfingalandsleikjum Úrúgvæ í landsleikjahlénu. Úrúgvæ tekur þátt í China Cup æfingamótinu og mætir Úsbekístan í undanúrslitum á föstudaginn. Næsti leikur verður svo annað hvort gegn Taílandi eða Kína sem eigast við í hinum undanúrslitunum.
Suarez ætti þó að ná öllum leikjum Börsunga. Næsti leikur er borgarslagurinn gegn Espanyol 30. mars og svo eru leikir gegn Villarreal 2. apríl og Atletico Madrid 6. apríl.
Fjórum dögum eftir Atletico er annar stórleikur, gegn Manchester United í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir