Wayne Rooney skoraði sína fyrstu þrennu í MLS-deildinni þegar lið hans, DC United, mætti Real Salt Lake um helgina.
Leiknum lauk með 5-0 sigri DC United og var það Rooney sem skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu á 34. mínútu leiksins.
Hann bætti öðru marki við stuttu fyrir hálfleik áður en að hann fullkomnaði þrennuna þegar tuttugu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik.
DC er á toppi Austur-deildarinnar þegar þrjár umferðir eru búnar, með sjö stig.
Wayne Rooney hefur verið í vandræðum í einkalífinu en hann var handtekinn ölvaður á almannafæri í desember og hefur hjónaband hans og Coleen Rooney verið mikið til umræðu eftir atvikið og fjölmiðlar vestan hafs velta því nú fyrir sér hvort að skilnaður sé í uppsiglingu.
Athugasemdir