Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. mars 2020 19:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Adam kemst ekki til Íslands vegna tveggja vikna sóttkvíar
Mynd: Adam Örn Arnarson
Adam Örn Arnarson gekk á dögunum í raðir Tromsö í Noregi.

Hann hefur að undanförnu verið í sóttkví vegna ferðalags Tromsö til Spánar.

Adam ætlaði sér heim til Íslands en kemst ekki vegna þess að hann þarf þá að fara í tveggja vikna sóttkví.

„Kláraði sóttkví í Noregi í dag og fékk leyfi frá klúbbnum mínum að ég mætti ferðast heim eftir sóttkvíið. Ísland gefur það út í dag að allir fari í 2 vikna sóttkví sem koma frá útlöndum. Kemst því ekki heim. Bara ef haters þurftu tilefni í kaldann í kvöld," skrifar Adam Örn á Twitter.


Athugasemdir
banner
banner