Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. mars 2020 22:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Cazorla samningslaus í sumar - Endurkoma til Arsenal á döfinni?
Mynd: Getty Images
Santi Cazorla gekk sumarið 2018 aftur í raðir Villarreal eftir veru hjá Malaga og Arsenal.

Cazorla hefur komið vell inn í hlutina hjá Villarreal eftir að hafa glímt við meiðsli á sínum síðustu árum hjá Arsenal.

Guillem Balague vekur athygli á því í dag að Cazorla verði samningslaus. Cazorla verður 36 ára gamall í desember.

„Þetta er áhugaverð staða því ég ræddi við Santi Cazorla og hann er ekki búinn að endursemja við Villarreal, samningurinn klárast í sumar," segir Balague.

„Að snúa aftur til Arsenal til að vinna með (Mikel) Arteta sem þjálfari er eitthvað sem ég tel að hann muni íhuga þegar hann hættir að spila. Hann vill samt spila í tvö ár í viðbót svo það er spurning hvað gerist næst," bætti Balague við.
Athugasemdir
banner
banner
banner