Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 18. apríl 2020 17:45
Ívan Guðjón Baldursson
Barcelona og Þróttur R. mætast í sýndarleik
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Klukkan 18:30 hefst sýndarleikur Þróttar R. gegn Barcelona í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2007.

Um er að ræða styrktarleik fyrir félagið á erfiðum tímum fyrir heiminn vegna kórónuveirunnar.

Hörður Magnússon og Halldór Gylfason leikari munu lýsa leiknum. Þeir gerðu kynningarmyndband fyrir leikinn sem má sjá neðst í fréttinni.

Tökum flugið með Þrótti!

Á þessum dæmalausu tímum er upplagt að þétta rendurnar sem aldrei fyrr og fylkja okkur að baki félaginu okkar.

Höfum því sett upp í fjáröflunarskyni eins raunverulegan sýndarleik og þeir verða. Um er að ræða leik sem stóð til að mæta í árið 2007. Þá voru liðin 11 ár frá stofnun Köttarana, sem settu þetta sem markmið frá byrjun.

Leikurinn átti að fara fram 2007, á Heysel og Barcelona vera mótherjinn. Nú látum við drauminn rætast.

Þrjár styrktarleiðir í boði:

Miði á leikinn 2.500 kr.
Miði á leikinn, drykkur og Konnabörger 4.000 kr.
Flugmiði aðra leið, miði, drykkur og börger 25.000 kr.
Vinsamlega leggið inn á reikning knattspyrnudeildar ef þið eruð aflögufær í þetta þarfa verkefni.

Kennitala 470108 – 1340.

Banki: 0111-26-012030

Lifi Þróttur





Athugasemdir
banner
banner