Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 18. apríl 2020 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton hafnaði tilboði frá fimm ára stuðningsmanni Leeds
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Úrvalsdeildarfélagið Brighton er búið að hafna kauptilboði frá Daniel Auton, fimm ára stuðningsmanni Leeds, í varnarmanninn efnilega Ben White.

White er 22 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í hjarta varnarinnar hjá Leeds á leiktíðinni. Hann er búinn að spila allar mínúturnar í Championship deildinni og hefur aðeins misst af 45 mínútum í bikar, þegar honum var skipt inn í hálfleik í stöðunni 0-2 gegn Stoke City.

„Kæri Paul, ég er 5 ára stuðningsmaður Leeds United. Ég skrifa þetta bréf til þín til að spyrjast fyrir um leikmann ykkar sem er hjá okkur að láni," segir í bréfinu sem var stílað á Paul Barber, framkvæmdastjóra Brighton.

„Leikmaðurinn sem um ræðir er minn uppáhaldsleikmaður, Ben White. Ef það er mögulegt, getum við plís, plís, plís keypt Ben eftir tímabilið.

„Ég er búinn að telja alla peningana í sparibauknum og er með 15.07 pund ef það hjálpar."


Bréfð rataði til Barber og fékk Auton litli svar í hendurnar 15. apríl.

„Það er mjög fallegt af þér að bjóða allan þinn sparnað til að hjálpa uppáhaldsfélagi þínu og þú ert augljóslega með gott auga fyrir ungum og hæfileikaríkum knattspyrnumönnum. Þú gætir kannski orðið njósnari í framtíðinni!" segir meðal annars í opinberu svari Barber.

„Eftir að hafa velt rausnarlegu tilboði þínu fyrir okkur höfum við ákveðið að hafna því. Bæði Graham Potter, aðalliðsþjálfarinn okkar, og Dan Ashworth, tæknilegur ráðgjafi, telja Ben vera afar mikilvægan leikmann fyrir framtíð Brighton."


Athugasemdir
banner
banner