18.04.21 - 12:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arteta: Mat æfir eins og skepna og á skilið tækifærið

Ryan kom frá Brighton í janúar

Mynd: Getty Images

Ryan kom frá Brighton í janúar

Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gerir fimm breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Fulham sem hefst klukkan 12:30 frá leiknum gegn Sheffield United í deildinni fyrir viku.
Arsenal lék þá gegn Slavia Prag á fimmtudag og vannst mikilvægur sigur þar sem kom liðinu áfram í undanúrslit Evrópudeildarinnar.
Arsenal lék þá gegn Slavia Prag á fimmtudag og vannst mikilvægur sigur þar sem kom liðinu áfram í undanúrslit Evrópudeildarinnar.
Arteta segir að hann sé bæði að dreifa álagi og að gefa mönnum tækifæri sem eigi það skilið.
Þeir Hector Bellerin og Gabriel koma inn í varnarlínuna frá leiknum gegn Sheffield og þeir Mo Elneny og Emile Smith-Rowe inn á miðjuna.
„Ég setti Mat í markið í dag því hann æfir eins og skepna. Hann hefur verið mjög jákvæður frá komu sinni, er að gera góða hluti og á skilið tækifæri í liðinu," sagði Arteta.
Bernd Leno er á bekknum en Rúnar Alex Rúnarsson er ekki í leikmannahópi Arsenal.
Arsenal er í barátunni um miðja deild á meðan Fulham berst fyrir lífi sínu í deildinni.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | -1 | 12 |
| 9 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 10 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 12 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 16 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -11 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |