Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 18. maí 2019 18:55
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: KB og KFS byrja á sigrum
Mynd: Aðsend
KB og KFS fara vel af stað í 4. deildinni í sumar. KB lagði Kormák/Hvöt að velli á meðan KFS hafði betur gegn KÁ.

Praveen Gurung og Aron Fuego Daníelsson skoruðu fyrir KB í fyrri hálfleik áður en Ingvi Rafn Ingvarsson minnkaði muninn í upphafi síðari hálfleiks.

Það mark hjálpaði lítið því Patryk Hryniewicki gerði út um leikinn skömmu síðar, 3-1.

Benedikt Októ Bjarnason gerði tvennu í 4-0 sigri KFS. Tómas Bent Magnússon og Elijah Henry Richardson komust einnig á blað.

4. deild - B-riðill
KB 3 - 1 Kormákur/Hvöt
1-0 Praveen Gurung ('16)
2-0 Aron Fuego Daníelsson ('34)
2-1 Ingvi Rafn Ingvarsson ('59)
3-1 Patryk Hryniewicki ('63)

4. deild - D-riðill
KFS 4 - 0 KÁ
1-0 Benedikt Októ Bjarnason ('32)
2-0 Tómas Bent Magnússon ('39)
3-0 Benedikt Októ Bjarnason ('43)
4-0 Elijah Henry Richardson ('87)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner