Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 18. maí 2020 15:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hudson-Odoi laus úr haldi - Chelsea neitar að tjá sig
Mynd: Getty Images
Callum Hudson-Odoi var í gær handtekinn eftir meint brot hans aðfaranótt sunnudags. Ung kona var flutt á sjúkrahús og í dag var sagt frá því að Callum væri grunaður um nauðgun.

Honum hefur nú verið sleppt úr haldi en hann verður yfirheyrður vegna málsins um miðjan næsta mánuð.

Chelsea, félagið sem Hudson-Odoi er á mála hjá, hefur neitað að tjá sig um málið að svo stöddu.

Samkvæmt fréttaflutningi TheSun heimsótti unga konan Hudon-Odoi á laugardagskvöldið.

Sjá einnig:
Hudson-Odoi handtekinn í London - Ung kona flutt með sjúkrabíl
Hudson-Odoi grunaður um nauðgun - Piers Morgan lætur hann heyra það
Athugasemdir
banner
banner
banner