Hvíti riddarinn vann annan leik sinn í A-riðli í 4. deild karla í kvöld er liðið fór illa með Kríu á Vivaldi-vellinum, 10-1.
Kría skoraði fyrsta mark leiksins á innan við mínútu er Vilhelm Bjarki Viðarsson kom boltanum í netið en það lá allt niður á við eftir það því Hvíti riddarinn skoraði fjögur mörk áður en hálfleikurinn var úti og gerði svo sex mörk til viðbótar í síðari hálfleiknum.
Ísak Máni Viðarsson kom inná á 60. mínútu gerði svo þrennu á þrettán mínútum. Þetta var annar sigur Hvíta riddarans sem er á toppnum eftir tvo leiki en þetta var fyrsta tap Kríu sem er með þrjú stig.
C-riðill fór þá af stað í dag. Árborg vann KM með fimm mörkum gegn engu á meðan Berserkir/Mídas unnu KB, 4-1. Álftanes lagði Hafnir, 3-2. Uppsveitir sóttu þrjú stig í Breiðholti með því að vinna Létti, 4-1. George Razvan skoraði hina fullkomnu þrennu. Fyrsta með skalla, annað með hægri og þriðja með vinstri.
KFR og GG gerðu 3-3 jafntefli í D-riðlinum. Jón Unnar Viktorsson jafnaði fyrir GG úr vítaspyrnu þegar þrjár mínútur voru eftir.
Úrslit og markaskorarar:
A-riðill:
Kría 1 - 10 Hvíti riddarinn
1-0 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('1 )
1-1 Aron Daði Ásbjörnsson ('10 )
1-2 Björgvin Heiðar Stefánsson ('34 )
1-3 Guðbjörn Smári Birgisson ('39 )
1-4 Eiður Andri Thoraransen ('42 )
1-5 Patrekur Orri Guðjónsson ('48 )
1-6 Eiður Andri Thoraransen ('50 )
1-7 Guðbjörn Smári Birgisson ('55 )
1-8 Ísak Máni Viðarsson ('77 )
1-9 Ísak Máni Viðarsson ('80 )
1-10 Ísak Máni Viðarsson ('90 )
C-riðill:
Árborg 5 - 0 KM
1-0 Ingi Rafn Ingibergsson ('22 )
2-0 Ingi Rafn Ingibergsson ('30 )
3-0 Magnús Hilmar Viktorsson ('39 )
4-0 Andrés Karl Guðjónsson ('57 )
5-0 Andrés Karl Guðjónsson ('69 )
Berserkir/Mídas 4 - 1 KB
1-0 Hilmir Hreiðarsson ('6 )
1-1 Kristjánn Hermann Þorkelsson ('12 )
2-1 Bjarki Sigurjónsson ('23, víti )
3-1 Hilmir Hreiðarsson ('56 )
4-1 Magnús Gunnarsson ('90 )
Álftanes 3 - 2 Hafnir
0-1 Kristófer Orri Magnússon ('12 )
1-1 Brynjar Jónasson ('16 )
1-2 Andri Þór Unnarsson ('27 )
2-2 Magnús Ársælsson ('36 )
3-2 Jonatan Aaron Belányi ('79 )
Léttir 1 - 4 Uppsveitir
1-0 Ari Viðarsson ('27, víti )
1-1 George Razvan ('41 )
1-2 Kristinn Sölvi Sigurgeirsson ('62 )
1-3 George Razvan ('71 )
1-4 George Razvan ('78 )
D-riðill:
KFR 3 - 3 GG
1-0 Hjörvar Sigurðsson ('5 )
1-1 Óliver Berg Sigurðsson ('16 )
2-1 Heiðar Óli Guðmundsson ('45 )
3-1 Helgi Valur Smárason ('58 )
3-2 Jón Unnar Viktorsson ('63, víti )
3-3 Jón Unnar Viktorsson ('87, víti )
Rautt spjald: Adam Frank Grétarsson ('78, GG )
Kalt var það Klara.
— KRÍA (@Kria_Fotbolti) May 18, 2022
1-10 tap. Ekki boðlegt, ekki boðlegt
Vivaldi loyals munu sameinast í kertafleytingu á Bakkatjörn á miðnætti.
Við biðjum þá innilega afsökunar. Ekkert annað í stöðunni. Spyrna sér af botninum https://t.co/fZZHZsXD8e
Athugasemdir