Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 18. maí 2022 23:10
Ingi Snær Karlsson
Kristján Guðmunds: Jafnt og þétt tókum við völdin
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst hann nokkuð góður af okkar hálfu, við fengum strax hálffæri í byrjun leiks sem við náðum ekki að klára á markið. Jafnt og þétt tókum við völdin." sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir 1-3 sigur á Aftureldingu í kvöld í Bestu deild kvenna.

Lestu um leikinn: Afturelding 1 -  3 Stjarnan

Var ekki léttir að skora tvö mörk undir lok leiks?

„Já, það er léttir að hafa tekið þrjú stig miðað við hvernig leikurinn spilaðist. Þetta var frekar einfaldur leikur. Við vorum kannski að flækja hlutina aðeins of mikið fyrir okkur þegar við vorum að spila upp völlinn".

Aðspurður hvort tímabilið sé búið að standast væntingar hingað til hafði hann þetta að segja: „Ekki alveg, en við þurfum þá bara að vinna það upp. Við hefðum viljað vera með fleiri stig, við viðurkennum það alveg en frammistaðan oft á tíðum fín. Við þurfum að vera einbeittari í færunum í byrjun leikjanna svo að við séum ekki að draga þetta svona langt út".

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner