Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. júní 2018 14:06
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Belgíu og Panama: Kompany meiddur
Hazard er fyrirliði Belgíu.
Hazard er fyrirliði Belgíu.
Mynd: Getty Images
Belgía mætir Panama í fyrsta leik þeirra síðarnefndu á Heimsmeistaramótinu og tefla Belgarnir fram gífurlega sterku liði.

Vincent Kompany og Thomas Vermaelen eru ekki með vegna meiðsla og tekur Dedrick Boyata sér stöðu í vörninni ásamt Toby Alderweireld og Jan Vertonghen.

Yannick Carrasco byrjar á vinstri kanti og Thomas Meunier er hægra megin, en fyrir framan þá eru Eden Hazard og Dries Mertens, með Romelu Lukaku fremstan.

Búist er við stórsigri Belga í dag enda þykir leikmannahópur Panama ekki uppá marga fiska.

Belgía: Courtois, Alderweireld, Boyata, Vertonghen, Meunier, Witsel, De Bruyne, Carrasco, Mertens, E. Hazard (c), R. Lukaku

Panama: Penedo; Murillo, Escobar, Torres, Davis; Gomez; Barcenas, Godoy, Cooper, Rodriguez; Perez.
Athugasemdir
banner
banner
banner