Belgar eru 1-0 yfir gegn nýliðum Panama í fyrstu umferð Heimsmeistaramótsins í Rússlandi.
Panama hefur átt góðan leik en vörnin gat lítið gert til að koma í veg fyrir opnunarmark leiksins snemma í síðari hálfleik.
Dries Mertens gaf boltann þá fyrir og skallaði vörnin frá. Boltinn endaði aftur hjá Mertens sem gerði sér lítið fyrir og smellti honum stórglæsilega yfir markvörðinn og í fjærhornið úr gríðarlega erfiðu færi.
Markið er hægt að sjá hér fyrir neðan og er leikurinn í beinni útsendingu á RÚV.
What a volley by Dries Mertens! #BEL pic.twitter.com/FHH6YWiE0k
— The Athletic Soccer (@TheAthleticSCCR) June 18, 2018
Athugasemdir