Íslenska landsliðið heldur áfram að eignast aðdáendur víða um heim með framúrskarandi frammistöðu. Margir bættust í aðdáendahópinn eftir 1-1 jafntefli gegn Argentínu á laugardag.
Rússneski sjónvarpsmaðurinn Vasily Utkin er hins vegar ekki hrifinn af íslenska landsliðinu. Utkin er skrautlegur karakter og hann hellti sér yfir íslenska liðið í gær.
„Þeir komu hingað til að eyðileggja fótboltann," sagði Utkin.
„Af hverju eruð þið að trufla okkur þegar við viljum horfa á fótbolta? Því fyrr sem þið pakkið niður í töskur og fljúgið heim til eldfjallanna ykkar, því betra."

Utkin er skrautlegur karakter sem hefur mjög oft vakið athygli fyrir furðuleg ummæli. Hann sofnaði einnig í miðri sjónvarpslýsingu í leik í Meistaradeildinni árið 2016.
Athugasemdir