Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 18. júní 2018 09:35
Elvar Geir Magnússon
Túnis vann enska blaðamenn í ballskák
Lines ásamt leikmönnum Túnis.
Lines ásamt leikmönnum Túnis.
Mynd: Mirror
Andy Lines, blaðamaður Mirror, heimsótti hótel landsliðs Túnis í aðdragandanum að leik Englands og Túnis sem fram fer í dag.

Lines skrifar pistil um heimsókn sína á þetta fimm stjörnu hótel sem hann segir töluvert betra en það landslið sem England dvelur á.

Sjá einnig:
Of sólríkt fyrir England í bækistöðvum Íslands

Lines og ljósmyndari hans fengu heldur betur góðar móttökur frá landsliði Túnis og enduðu í ballskák (pool) með tveimur leikmönnum; Youssef Fakhreddine og Yassine Meryah.

Túnis bar sigur úr býtum í þeirri keppni og fróðlegt að sjá hvort það gefi fyrirheit fyrir fótboltaleikinn sem verður í kvöld klukkan 18 að íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner