Það fara tveir leikir fram í íslenska boltanum í dag. Annar þeirra er í Pepsi Max-deild karla og hinn í 4. deildinni.
Pepsi Max-leikurinn lofar góðri skemmtun þar sem Stjarnan mætir Breiðabliki á Samsung vellinum í Garðabæ.
Blikar geta endurheimt toppsætið af KR með sigri, en síðasta leik liðsins lauk með 4-3 tapi gegn Fylki í Árbænum.
Stjarnan er fjórum stigum á eftir Blikum og getur náð fjórða sætinu með sigri.
Í 4. deildinni á GG heimaleik við Stokkseyri. Grindvíkingar eru á toppi C-riðils með fullt hús stiga ásamt Hamri. Stokkseyringar koma næstir á eftir með sex stig eftir fimm umferðir.
Pepsi Max-deild karla
19:15 Stjarnan-Breiðablik (Stöð 2 Sport - Samsung völlurinn)
4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
20:00 GG-Stokkseyri (Grindavíkurvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir