Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 18. júní 2019 10:30
Elvar Geir Magnússon
Rodri vill fara frá Atletico - Man City hefur áhuga
Rodri.
Rodri.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Rodri hefur sagt Atletico Madrid að hann vilji yfirgefa félagið í sumar. Manchester City og Bayern München hafa áhuga á þessum 22 ára leikmanni.

Marca segir að Rodri sé með 70 milljóna evra riftunarákvæði í samningi sínum.

Rodri hefur aðeins leikið eitt tímabil með Atletico en hann kom frá Villarreal fyrir ári síðan.

Hann hefur leikið fimm landsleiki fyrir Spán undanfarið ár en horft er á hann sem arftaka Sergio Busquets í spænska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner