Landsliðsmaðurinn, Gylfi Þór Sigurðsson og fegurðardrottningin, Alexandra Helga Ívarsdóttir gengu í það heilaga á Ítalíu um helgina, við Como-vatnið.
Engar myndir birtust af Alexöndru Helgu á Instagram um helgina í brúðarkjólnum en nú hefur eiginkona Gylfa Þórs birt mynd af sér með eiginmanni sínum, Gylfa Þór á Instagram-reikningi sínum.
„Alexandra Helga klæddist glæsilegum hvítum kjól sem var klæðskerasniðinn á hana. Hvít blúnda lék stórt hlutverk í efnisvali. Kjóllinn er með hlýrum og skósíður og opinn í bakið og fór brúðinni vel," sagði Marta María á Smartland.
„Hárgreiðslan var falleg og látlaus en hárið var tekið upp að framan þannig að það sæist vel í andlitið og svo voru lokkarnir krullaðir," skrifaði Marta María einnig.
Hægt er að sjá myndina hér að neðan.

Sjá einnig:
Myndir af landsliðsmönnunum í brúðkaupi Gylfa Sig
Athugasemdir