- Fylkir vann KR í kvöld.
„Þetta er rosalega gott og það er ótrúlega skemmtilegt að vinna svona leiki, sérstaklega svona stressandi leiki þannig að þetta var sætur sigur,“ segir Berglind Rós Ágústsdóttir, fyrirliði Fylkis, eftir 3-1 sigur á KR í kvöld í Pepsi Max-deild kvenna.
Lestu um leikinn: KR 1 - 3 Fylkir
Fylkir skoraði á fyrstu mínútu leiksins og sagði Berglind að markmið þeirra væri að keyra strax á þær.
„Við lögðum upp að keyra hratt á þær, breaka hratt þegar við fáum boltann og fara hratt upp í hæðina og það virkaði, eins og fyrsta markið. Fyrsta markið var smá þannig en við duttum samt aðeins niður en komum alveg sterkari í seinni hálfleik og kláruðum þetta.“
„Ég er mjög glöð. Eftir fyrsta leikinn er maður alltaf stressaður og maður þarf að vinna næsta leik til að halda svona áframhaldandi sigurgöngunni. Þannig þetta er mjög mikil gleði og alltaf gaman að vinna KR á KR-velli líka.“
Fylkir er búið að vinna fyrstu tvo leiki sína í Pepsi Max deildinni í ár og segir Berglind að liðið þurfi að halda áfram að spila sinn leik. Næsti leikur þeirra er á heimavelli, en þá taka þær á móti Þrótti.
„Við þurfum að halda liðsheildinni og bara halda okkar spili, spila áfram okkar bolta og sem betur fer er það á gervigrasi.“
Viðtalið í heild sinni má nálgast í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir