Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 18. júní 2020 21:28
Arnar Helgi Magnússon
Dagný Brynjars: Þetta er ekki boðlegt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik sótti þrjú góð stig á JÁVERK-völlinn í kvöld þegar liðið mætti Selfossi í stórleik umferðarinnar í Pepsi Max-deild kvenna. Leiknum lauk með 0-2 sigri Breiðabliks.

„Mér fannst við á köflum stýra þessu vel og stjórna en þetta er áhyggjuefni, þetta var alveg eins og á móti Fylki, við náum ekki að hitta á markið," sagði Dagný Brynjarsdóttir í leikslok.

Lestu um leikinn: Selfoss 0 -  2 Breiðablik

„Við erum búin að fá á okkur þrjú mörk í sumar og þau koma öll eftir föst leikatriði. Það á ekki að ske, við erum með það sterka menn. Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða. Þetta er ekki boðlegt."

„Mér fannst uppleggið ganga vel upp en oft á tíðum hefðum við getað haldið aðeins betur í boltann. Svo þurfum við að hitta á markið í þeim færum sem við fáum. Föstu leikatriðin okkar voru að skapa hættu en við þurfum að ná honum á markið."

Dagný Brynjarsdóttir segist eiga mikið inni eftir þessa tvo leiki sem eru búnir af mótinu.

„Ég myndi segja að ég ætti meira inni. Ég er svona að finna mig. Ég var 'box to box' í síðasta leik og framherji í dag. Við erum smátt og smátt að spila okkur saman. Okkar helsta áhyggjuefni er það að við þurfum að skora og bæta okkur í föstum leikatriðum varnarnlega."

Viðtalið við Dagný má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner